top of page

Vinsemd

Vegferð að Vellíðan

Þar sem markmiðið er að styðja einstaklinga og fjölskyldur sem hafa upplifað erfiðleika, áföll eða sorg.
Í sumum tilvikum er einnig stuðst við listsköpun sem hluta af ferlinu. Einnig er boðið upp á ráðgjöf, sáttamiðlun, fræðslu og ýmis námskeið.

Ef þú hefur áhuga á að nýta þér þjónustuna, þá er þér velkomið að bóka tíma.

getty_542959856_2000133320009280405_365308.jpg
About
486101392_1175550837687756_3827298982674608287_n.jpg

Um mig

Ég heiti Ína Lóa og hef áralanga reynslu af kennslu, fræðslu, ráðgjöf og stuðningi við fólk í sorg og áföllum. Einnig hef ég mikla reynslu af því að leiða stuðningshópa og námskeið. Ég var einn af stofnendum Sorgarmiðstöðvar og framkvæmdastjóri þar fyrstu sjö árin. Einnig stofnaði ég samtökin Ljónshjarta. Ég er hugmyndasmiður og einn höfunda fræðsluþáttanna Missir I og II, og byggi starf mitt á faglegri þekkingu og eigin reynslu, með áherslu á nærgætni, virðingu og samkennd.
 

Menntun

  • Meistaranám í heilbrigðisvísindum - geðheilbrigði og áföll - HA (í námi)

  • Listmeðferð – HA (í námi)

  • Sálgæsla, diplóma á meistarastigi – EHÍ

  • Markþjálfun – Evolvia

  • Sáttamiðlun – Sáttamiðlaraskólinn

  • Kennaramenntun (B.Ed.) – HÍ

  • Fjölmörg námskeið um sorg og áföll


Markmið mitt
Að skapa öruggt og notalegt rými þar sem einstaklingar, börn og fullorðnir fá stuðning til að takast á við sorg, áföll og áskoranir, og vinna að bættri líðan með faglegri og hlýrri nálgun.

Services
isaac-benhesed-h9rr7czz914-unsplash.jpg

Stuðningsviðtal

Stuðningsviðtal felst í því að veita nærveru og góða hlustun á erfiðum tímum. Markmiðið er að mæta þér af virðingu og samkennd og styðja þig í að finna jafnvægi og styrk á ný í breyttum aðstæðum.

martin-sanchez-MD6E2Sv__iA-unsplash.jpg

Sáttamiðlun

Sáttamiðlun er ferli sem hjálpar þér að vinna úr ágreiningi með samtali, virðingu og gagnkvæmum skilningi. Markmiðið er að skapa rými þar sem allir fá að tjá sig.

Conference Seating

Fræðsla og ráðgjöf

Hægt er að óska eftir fræðslu og ráðgjöf fyrir ýmsa hópa t.d. skólasamfélagið, fyrirtæki og stofnanir.
Einnig er hægt að óska eftir dagskrá fyrir starfsdaga.

 

anastasia-petrova-xu2WYJek5AI-unsplash.jpg

Námskeið

Námskeiðin miða fyrst og fremst að því að styðja þig í gegnum áskoranir og styrkja á eigin vegferð. Listsköpun er hluti af einhverjum námskeiðum og nýtist sem skapandi leið til úrvinnslu.
 

Art Brushes Stained with Paint

Skapandi úrvinnsla

Skapandi úrvinnsla getur verið öflug leið til að vinna með tilfinningar. Hún hentar öllum aldri og getur verið sérstaklega hjálpleg fyrir börn og unglinga.
 

Contact

Umsagnir

„Ég fékk einstaklega hlýtt viðmót þar sem ég upplifði strax mikið traust“
Testimonials
vinsemd22.png
Vinsemd
Suðurgata 41
220 Hafnarfirði
  • White Facebook Icon
  • White Instagram Icon

© 2025 by Sigurdardottir. Powered and secured by Wix

bottom of page